5 juni 2026
66 min
Við fengum til okkar frábæran gest í vikunni því Bjarney Sonja Ólafsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún gengur alla jafna undir nafninu Baddý og er búsett í Frankfurt, Þýskalandi þar sem hún rekur hugbúnaðar fyrirtækið 1xInternet.
Baddý var skikkuð í golf sem barn en hún kemur úr mikilli golffjöldskyldu. Hún stundaði íþróttina fyrstu árin frekar af skyldurækni en af mikilli gleði enda var hún öflug í handbolta sem átti betur við hana á unglingsárum. Baddý fékk hins var golfdelluna á nýjan leik fyrir sex árum og er í dag með um 16 í forgjöf.
Baddý segir okkur frá því þegar hún fór holu í höggi á 18. holu Öndverðarnesvallar en svo kom í ljós að öll fjölskylda hennar hefur tekist að fara holu í höggi á þeim velli. Það er í raun alveg magnað.
Við fáum líka að heyra hvernig golfið er í Þýskalandi en fjölmargir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni við Frankfurt.
Frábær þáttur sem kemur á óvart!
Lyssna på fler avsnitt från
Seinni níu
Visar 1–10 av 119 avsnitt
6 juli 2026
64 min
29 juni 2026
67 min
23 juni 2026
72 min
15 juni 2026
64 min
7 juni 2026
66 min
25 maj 2026
62 min
19 maj 2026
71 min
11 maj 2026
83 min
4 maj 2026
61 min
27 april 2026
67 min