21 juni 2026
70 min
Í þessum þætti af Lífið á meðan sest Óðinn niður með mér.
Flest þekkjum við hann úr fjölmiðlum og opinberri umræðu. En í þessum þætti kynntist ég allt öðrum Óðni.
Þriggja barna föður, eiginmanni og aðstandanda.
Manni sem hefur þurft að halda áfram að mæta í öll sín hlutverk á sama tíma og fjölskyldan hans hefur staðið frammi fyrir einni stærstu áskorun lífs síns.
Við ræðum um það hvernig alvarleg veikindi hafa áhrif á alla fjölskylduna, hvernig börnin verða hluti af ferðalagi sem þau kusu sér ekki, hvað hjálpar þegar maður stendur frammi fyrir óvissu og hvað hjálpar alls ekki. Við tölum um baklandið sem greip þau, dagana sem voru erfiðir, húmorinn sem hélt þeim gangandi og af hverju það skiptir máli að halda áfram að finna gleði jafnvel þegar lífið er í uppnámi.
Það sem sat mest í mér eftir samtalið var jákvæðnin, sú tegund af von sem velur að halda áfram þrátt fyrir að vita ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér.
Lyssna på fler avsnitt från
Lífið á meðan
Visar 1–9 av 9 avsnitt
8 juli 2026
95 min
7 juni 2026
47 min
20 maj 2026
94 min
7 maj 2026
88 min
24 april 2026
51 min
14 april 2026
86 min
2 april 2026
74 min
26 mars 2026
68 min
20 mars 2026
7 min